Vikupistill
25. apríl
2005
1. Kennarafundur
2. maí
Boðað er til kennarafundar mánudaginn 2. maí kl. 13.15 á kennarastofu. Dagskrá
fundarins:
1.
Breyting
á skólasóknarreglum
2.
Ný
stokkatafla
3.
Önnur
mál
2. Vikan
25. - 29. apríl
Nú eru einungis 4 kennsludagar eftir af önninni. Minnt er á þá reglu að
síðustu kennsludagar séu próflausir. Vorprófin hefjast svo föstudaginn 29.
apríl og eru kennarar beðnir um að kynna sér vel yfirsetu- og prófareglur.
Prófstjóri er Jörundur Þórðarson.
3.
Útskriftarnemar
Nemendur sem verða brautskráðir af heilbrigðisbrautum þáðu kaffiveitingar á
kennarastofu miðvikudaginn 20 apríl. Kveðjuathöfn stúdentsefna fór fram
föstudaginn 22. apríl. Þessir viðburðir tókust mjög vel.
4. Kynning
á verkefnum kennaranema
Kennaranemar kynntu verkefni sín föstudaginn 22. apríl. Verkefnin varða
ýmislegt í innra starfi FÁ, svo sem aðstoð við “dyslexíu”
nemendur, nýbúakennslu og erlent samstarf. Guðfinna og María halda utan um
kennaranemahópinn. Skólinn fær skýrslur um verkefnin þegar þær eru tilbúnar.
5. Frá Framvegis
Aðsókn að námskeiðum Framvegis hefur verið ágæt þessa vorönn 2005. Sérlega
ganga mjög sérhæfð og hagnýt námskeið vel. Góð þátttaka hefur verið á
fjarkenndu námskeiðunum fyrir félags- og heilbrigðisstéttir sem voru sex að
þessu sinni. Ný verkefni á önninni voru sex tungumálanámskeið fyrir félagsmenn
aðildarfélaga BSRB, “forystudanska” fyrir norrænt samstarf og Á vettvangi endurmenntunarnám
fyrir læknaritara. Samstarf við Starfsmennt og SFR - starfsmannafélag í
almannaþágu fer vaxandi. Við höfum orðið varar við aukinn áhuga á notkun
fjarfundabúnaðarins að undaförnu, auk annarra vaxandi vinsælda. Framtíðin lofar
því góðu.
Gísli