Vikuskammtur
22. september 2003
Tvífall í áfanga
Nú hefur verið tekin saman skrá yfir þá sem tvífallið hafa í sama áfanga eða oftar. Þórdís námsráðgjafi mun sérstaklega ræða við þessa nemendur og gera umsjónarkennurum þeirra viðvart. Boðið verður upp á sérstaka aðstoð við þá sem gengur illa í einni grein en að öðru leyti vel.
Gulir miðar
Minni á gula spjaldið. Afhendið þeim nemendum spjaldið sem eiga það skilið.
Nordplus junior
Umsóknarfrestur um styrki úr Nordplus rennur út 1. október!
Leonardoferð til
Hollands
Katrín Baldursdóttir og Ólafur Þórisson voru í Hollandi í vikunni sem var að kynna sér skóla með upplýsingatæknisniði. Þau munu síðar skýra okkur frá afrakstri ferðarinnar.
Fundahöld
Ýmsir fastir fundir eru haldnir í viku hverri. Á mánudagsmorgnum
hittast aðstoðarskólameistari, áfangastjóri og undirritaður og er þá litið yfir
liðna viku og dagana framundan og ákvarðanir teknar um ýmis mál. Strax að því
loknu funda sömu aðilar með námsráðgjöfum. Síðan er litið á fjármál ef þurfa
þykir. Samstarfsnefnd hittist á þriðjudagsmorgnum kl. 8.30, en í henni sitja
undirritaður, Ólafur H. Sigurjónsson, Sigurlaug Kristmannsdóttir og Ragnheiður
Bóasdóttir. Kennslustjórar heilbrigðisbrauta funda með SS og ÓHS kl. 11.40 á
þriðjudögum. Ýmsir fundir eru síðan haldnir með óreglulegu móti.
Styrkir til nýjunga í
fjarkennslu
Auglýst hefur verið eftir umsóknum á vegum Sókratesar um nýjungar í fjarkennslu. Hugmyndir óskast! Gaukið þeim að Steinunni. Hér getur verið um talsvert háar fjárhæðir að ræða.
Innritun í árs framhaldsnám
sjúkraliða
Innritun stendur nú yfir og hafa margir sýnt áhuga. Langflestir sjúkraliðar fá leyfi á launum til þess að stunda þetta nám og nú er fyrirhugað að kenna með fjarfundabúnaði norður á Akureyri og hugsanlega til fleiri staða ef næg þátttaka fæst.
Verkbeiðni til
umsjónarmanns
Í rekka á kennarastofu er eyðublað sem heitir eins og ofangreind fyrirsögn. Þetta er til þess að einfalda leiðir og til þess að fjármálastjóri hafi betri sýn yfir það sem gert er. Verkbeiðni verður síðan fylgiskjal með reikningum í bókhaldi.
Tölur úr
nemendabókhaldi
Föstudagsmorguninn voru 933 nemendur virkir í Innu, 324 piltar og 609 konur, eða 65% nemenda. 249 eru í heilbrigðisskólanum, en stærsta brautin í honum er sjúkraliðabraut með 93 nemendur að framhaldsnáminu meðtöldu. Félagsfræðibraut er annars fjölmennust með 329 nemendur, en náttúrufræðibraut hefur stækkað mest, úr 79 nemendum á vorönn í 123 nemendur núna.
Aldursdreifingin hefur líka breyst. 78 nemendur eru úr árganginum sem kom beint úr grunnskóla í fyrra, en 117 eru núna úr árgangi 1987. Alls eru 533 nemendur fæddir 1983-1987. Elsti nemandi skólans er fæddur 1937, tveir litu dagsins ljós 1942, þrír þegar lýðveldið var eins árs, tveir 1946 og tveir 1948. 36 nemendur eru fæddir 1950-1960.
Ársnemendur
Nemendur eru nú skráðir fyrir 14.979 einingum. Skili þér sér
allir í próf reiknast þeir sem 427 ársnemendur. Fjarnámsfólk er skráð fyrir
4.152 einingum sem leggja sig á 118 ársnemendur – ef allir skila sér í próf.
Stytting náms til
stúdentsprófs
Oddný Harðardóttir sem við þekkjum mörg, aðstoðarskólameistari í Fjölbrautaskóla Suðurnesja, vinnur nú í menntamálaráðuneytinu við að undirbúa styttingu náms til stúdentsprófs. Ég bauð henni að reyna útfærsluleiðir á gögnunum okkar, þessari önn, því að það er fróðlegt og nauðsynlegt að sjá hvaða áhrif mismunandi útfærslur hafa á kennslumagn skólans og þá vitaskuld starfsmannahaldið.
Vetniskrakkarnir og
Ólafur
fóru til Búdapest á föstudaginn og vonandi hafa þau ekki
verið stöðvuð í tolli, en þau þurftu sérstaka heimild toll- og öryggisvarða til
þess að fá að fara með vetnistól og tæki í handfarangri. Fylgist með framvindu
mála á heimasíðu verkefnisins.
Sölvi Sveinsson