Vikupistill

21.  febrúar 2005

Fjarvistir nemenda

Ólafur H. Sigurjónsson, Eyjólfur Bragason og Elín Vilhelmsdóttir eru í vinnuhópi sem mun endurskoða fjarvistarreglur skólans. Tillögur þeirra verða lagðar fyrir kennarafund.

 

Átaksvika nemenda 14. – 18. febrúar

Átaksvikan tókst vel. Skemmtilegar uppákomur voru í hádegishléinu alla dagana. Nú hefst eftirfylgnin. Ég skora á alla starfsmenn að áminna nemendur sem reykja þar sem slíkt er bannað.

 

Miðannarmat

Miðannarmat þarf að færa í INNU í síðasta lagi 23 febrúar. Nemendur fá matið í umsjónartíma mánudaginn 28. febrúar.

 

Egluferð

Íslenskudeildin fór með um 40 nemendur á Egluslóðir fimmtudaginn 17. febrúar og tókst ferðin mjög vel.

 

Árdagar

Dagskrá Árdaga hefst eftir fyrstu kennslustund þriðjudaginn 1. mars og verður sá dagur helgaður þemanu: “Hvað viltu verða?” 2. mars verður dagur menningar og lista og 3. mars íþrótta- og heilsudagur. Nemendur halda árshátíð fimmtudagskvöldið 3. mars. Frí er í skólanum föstudaginn 4. mars.

 

Fundir

1.            Kennarafundur var föstudaginn 18. febrúar kl. 13.00 – 14.30. Fundargerð fylgir.

2.            Fyrsti fundur umhverfisnefndar FÁ var haldinn föstudaginn 18. febrúar kl. 15.00. Fundargerð fylgir.

3.            Verkstjórar í ensku, íslensku og stærðfræði eru boðaðir til fundar um samræmd próf á skrifstofu skólameistara fimmtudaginn 24. febrúar kl. 12.40. Auk þeirra eru aðstoðarskólameistari og námsráðgjafar boðaðir á fundinn.

4.            Fundir í deildum geta verið föstudaginn 25. febrúar kl. 13.00.

 

Gísli Ragnarsson

 

Kennarafundur föstudaginn 18. febrúar 2005 kl. 13.00

 

Gísli Ragnarsson setti fundinn og stýrði honum

 

Önnur mál

Gísli ræddi lélega skólasókn nemenda og taldi rétt að endurskoða fjarvistarkerfið. Ólafi H. Sigurjónssyni verður falið að stýra nefnd sem mun fara yfir fjarvistakerfið og leggja tillögur fyrir kennarafund. Ólafur hvatti kennara til að ljúka öllum fjarvistafærslum í INNU svo hægt sé að sjá mætingarprósentur nemenda. Hann nefndi að miklar fjarvistir nemenda stöfuðu að hluta til vegna mikilla veikinda í janúar.

Kristján Thorlacíus minnti á miðannarmat sem nú stendur yfir. Það þarf að vera búið að færa matið í INNU í síðasta lagi 23. febrúar. Kristjan bað kennara að gæta þess að færa miðannarmatseinkunnina í réttan dálk.

Margrét Gestsdóttir sagði í stórum dráttum frá dagskrá Árdaga FÁ. Dagskráin hefst eftir fyrstu kennslustund þriðjudaginn 1. mars og verður sá dagur helgaður þemanu: “Hvað viltu verða?” 2. mars verður dagur menningar og lista og 3. mars íþrótta- og heilsudagur. Nemendur halda árshátíð fimmtudagskvöldið 3. mars. Frí er í skólanum föstudaginn 4. mars.

 

Kynning á niðurstöðum sjálfsmatshópa

Jóna Guðmundsdóttir sagði frá því að kennarar í stýrihópnum um sjálfsmat hefðu á haustönn lagt fyrir kennslukönnun í sínum hópum. Því miður eru niðurstöður ekki komnar þar sem kennslukönnunarforritið er í ólagi. Það stendur þó til bóta. Stefnt er að því að leggja kennslukönnun fyrir í tveimur deildum á vorönn auk þess sem kennarar sem þess óska geta verið með. Sú hugmynd kom fram að gera kennslukönnun í einhverjum hópum fjarnámsins.

 

Kristín Björgvinsdóttir kynnti niðurstöður hópsins sem fjallaði um aðstöðuleysi nemenda. Vinnuhópurinn vann náið með nemendum við að kortleggja það sem betur má fara varðandi aðstöðu nemenda innanhúss. Eftirfarandi tillögur komu fram:

 

Ø            Til byggingarnefndar: Nýtt bókasafn stærra en eldra safn, góð loftræsting, meira lesrými, hópvinnuherbergi, sérinngangur opinn fram á kvöld, margar innstungur fyrir tölvur, hljómflutningstæki o.s.frv. Mötuneyti/sjoppa þarf geta afgreitt heita rétti nægilega hratt. Nægilega mörg salerni með góðri loftræstingu. Gluggar í kennslustofum ekki of stórir og snúi ekki í sólarátt.

Ø            Bókasafn: Kennarar og nemendur verði duglegri koma með ábendingar um nýtt efni á bókasafnið.

Ø            Anddyri/betri stofa: Fleiri bekki og stóla og jafnvel fleiri borð. Bæta við upplýsingaskjá. Kaffisjálfsala, t.d. á 2. hæð og í betri stofu. Samlokusjálfsala. Fleiri örbylgjuofna og mínútugrill. Hraðbanka. Fleiri spil og klukkur.

Ø            Hnetulundur: Stækka afgreiðslusvæði og minnka einstaklingsþjónustu.

Ø            Gangar: Bekki á ganginn á þriðju hæð miðálmu líkt og er á annari hæð. Koma fyrir skipuriti yfir kennslustofur í anddyri.

Ø            Tölvur: Bæta við prentara í austurálmu. Lengja afgreiðslutíma þjónustuvers.

Ø            Utanhúss: Huga aðstöðu reykingamanna og gæta þess þeir haldi sig þar. Bekki fyrir framan inngang, sú kvöð fylgir að þar eru reykingar bannaðar.

Ø            Kennslustofur: Húsgögn við hæfi nemenda. Draga úr sólargeislun. Kaupa klukkur í kennslustofur. Bæta aðstöðu í stofum þar sem verkleg hjúkrun er kennd.

Ø            Skápar: Umorða auglýsingu um skápa á jarðhæð, nemendur þora ekki nota skápana undir bækur.

Ø            Annað: Tilgreina flóttaleiðir í stofum. Skólinn verði málaður í hlýrri litum.

 

Sigurlaug Kristmannsdóttir kynnti niðurstöður hópsins sem fjallaði um fyrirkomulag fjarnáms. Sigurlaug kynnti skýrslu sem hér fylgir í heild sinni:

 

Vinnuhópur um fjarnám: Halldór Leifsson, Hólmfríður Bára Bjarnadóttir, Jóna Guðmundsdóttir, Ólafur Hjörtur Jónsson, Páll Thayer, Sigurlaug Kristmanndóttir og Þórður Sigurðsson.  Sigurlaug var hópstjóri og ritari á fundum.

 

Viðfangsefni:  Fjarnámsfyrirkomulag er ekki í nægilega föstum skorðum.

o                                                 Ósamræmi er í samskiptum kennara við nemendur í fjarnámi.

o                                                 Tímasetningu fjarnámsprófa og dagskólaprófa þarf að samstilla betur.

o                                                 Engar reglur eru um þjónustu við fjarnemendur.

 

Haldnir voru þrír fundir og á milli funda skiptust meðlimir hópsins á skoðunum í tölvupósti.

 

Í upphafi starfsins var reynt að kortleggja hvað það væri sem hópurinn ætti að fjalla um og kom þá eftirfarandi fram:

·              Samræma þarf reglur um framkvæmd fjarnámsins:

o                                     Setja þarf reglur um þjónustu sem kennarar eiga að veita.

o                                     Starfslýsing fyrir kennara þarf að vera til.

o                                     Samræma þarf námsmatið

·              Setja þarf upp nánari kynningu á WebCT út á netið til að nemendur sjái hvernig fjarnámið er byggt upp.

·              Laun og réttindi fjarkennara þarf að skoða.

·              Huga þarf  betur að kennslufræði, nú þegar flestir hafa tæknina á sínu valdi.  Mætti hugsa sér námskeið fyrir fjarkennara um kennslufræði fjarnáms.  Til dæmis með því að hafa fund í byrjun vorannar um fjarnámið og síðan stærri fund um miðja önn og fá jafnvel erlendan gest til að fjalla um kennslufræði fjarnámsins.  Mætti hugsa sér að tengja þann fund við heimsókn gests á UT 2005.

·              Leggja þarf könnun fyrir nemendur fjarnámsins til að meta gæði náms og kennslu.

 

Hópurinn ákvað að skoða starfslýsingu fjarkennara sem til er í stofnuninni og vinna tillögur að nýrri starfslýsingu, annars vegar fyrir kennara að taka mið af og hins vegar til að setja út á netið fyrir nemendur svo þeir viti á hverju þeir eiga rétt.  Ljóst er að þessar tillögur vinnuhópsins þurfa meiri umræðu í hópi allra fjarkennara.

 

Starfslýsing fjarkennara – tillaga vinnuhóps um fjarnám.

 

Skyldur stjórnenda við fjarkennara:

1.            Kennarar hafi tækifæri til þeirrar endur- og símenntunar sem þeir þurfa til að geta  sinnt störfum sínum af metnaði í samræmi við kröfur tímans.

2.            Kennarar hafi aðgang að þeim hug- og vélbúnaði sem þeir þurfa  í samráði við fjarnáms- og netstjóra.

3.            Fjarkennarar fái launin sín greidd á umsömdum tíma.

 

Starfslýsing fjarkennara í FÁ:

1.            Bókalisti þarf að liggja fyrir viku áður en skráning hefst.  Kennari þarf að sjá til þess að námsbækur séu tiltækar í bókabúðum.

2.            Áfangalýsingar á heimasíðu fjarnámsins þurfa að liggja fyrir þegar skráning hefst.  Fjarkennarar þurfa að senda upplýsingar til fjarnámsstjóra um breytingar á áfangalýsingu.

3.            Kennsluáætlun þarf að liggja fyrir við upphaf annar.

4.            Vægi námsþátta skal ekki breytt eftir að það hefur verið auglýst. Auglýst lokapróf skulu standa.

5.            Viðmótið (t.d. í WebCT) sem snýr að nemandanum þarf að vera klárt í upphafi annar og mikilvægt er að hefja kennslu strax og önn hefst.

6.            Kennari á að miðla námsefni til nemenda sinna á skýran og skipulegan hátt og leitast við að vekja áhuga þeirra.

7.            Kennari á að hafa uppeldisfræðileg sjónarmið að leiðarljósi í samskiptum sínum við nemendur sína.

8.            Sömu kröfur eiga að gilda í sömu áföngum dagskóla og fjarnáms.  Þannig skal setja fjarnemendum fyrir sambærileg skilaverkefni (ritgerðir, skýrslur o.s.frv.) og í dagskóla eftir því sem tök eru á.  Einkum verkefni sem skilgreind eru í aðalnámskrá og m.a. fela í sér þjálfun í ákveðnum vinnubrögðum.  Nemendum skal skylt að skila öllum námsþáttum sem tilteknir eru í kennsluáætlun.

9.            Kennari á að meta frammistöðu nemenda með einkunnum og/eða skriflegum ummælum og hvetja þá til dáða og hrósa þeim þegar það á við.

10.        Kennari á að leiðbeina þeim sem eiga erfitt með tæknina eftir bestu getu en vísa til fjarnámsstjóra vandamálum sem hann getur ekki leyst.

11.        Kennari skal svara fyrirspurnum nemenda innan tveggja virkra sólarhringa og fara yfir stærri skilaverkefni eins fljótt og auðið er.  Ef kennari skila ekki mati strax, þarf hann að gera nemendum grein fyrir því hvenær vænta má mats.

12.        Úrsagnir nemenda úr áföngum sem berast til kennara skal komið áfram til fjarnámsstjóra og öfugt.

 

Próf.

1.            Kennari á að senda fjarnámsstjóra prófin með viku fyrirvara. Próf skulu send í tölvupósti.

2.            Blaðsíður skulu númeraðar og heiti prófs skal koma fram á hverri síðu.

3.            Sérstök stöðluð forsíða er ætluð fjarnámsáföngum. Kennarar þurfa aðeins að færa þar inn heiti áfangans, leyfileg hjálpargögn og eigið nafn.

4.            Próf skulu send til fjarnámsstjóra undir heiti áfangans t.d. DAN103vor05.

 

Skyldur kennara gagnvart nemendum: 

Þessar upplýsingar skulu vera aðgengilegar nemendum á heimasíðu skólans og/eða í WebCT.

1.            Kennari á að setja fram nákvæma kennsluáætlun sem inniheldur m.a. markmið áfangans og áætlaða yfirferð.  Það er í höndum hvers kennara hversu nákvæm áætluð yfirferð er.  Einnig skulu vera í kennsluáætlun útskýringar á  vinnulagi/námstækni.

2.            Kennari á að hafa samband við nemendur vikulega og gefa þeim m.a. fyrirmæli/ráðleggingar  varðandi verkefni, lestur og/eða minna þá á verkefnaskil.

3.            Kennara ber að setja námsefni fram á aðgengilegan hátt og leitast við að útskýra það fyrir nemendum á eins skýran hátt og honum er unnt.  Einnig skal hann vísa nemendum á hvar ítarefni er að finna.

4.            Kennari á að meta frammistöðu nemenda fyrir skilaverkefni með einkunnum og/eða skriflegum umsögnum sem fela í sér leiðréttingar, leiðbeiningar og útskýringar. Auk þess skal kennari hvetja og hrósa þegar það á við.

5.            Kennari á að svara fyrirspurnum nemenda innan tveggja virkra sólarhringa. Kennari skal hafa lengri tíma ef um yfirferð á verkefnum/ritgerðum er að ræða.  Ef kennari metur ekki verkefni strax, skal hann gera nemendum ljóst hvenær þeir eiga von á námsmati.

6.            Kennari á að benda nemendum á hvar námsbækurnar fást og tryggja að þær séu til.

 

Skyldur nemenda í fjarnámi: 

Þessar upplýsingar skulu vera aðgengilegar nemendum á heimasíðu skólans og/eða í WebCT.

1.            Nemandi á að fara inn í kennsluumhverfi á netinu eins oft og kennarinn leggur til og helst ekki sjaldnar en vikulega.

2.            Nemandi á að virða þær reglur sem kennari setur varðandi verkefnaskil.

3.            Nemandi á að láta kennara vita ef hann getur ekki skilað verkefni á tilsettum skiladegi og biðja þá um frest.

4.            Nemandi á að láta kennara vita ef hann er ákveðinn í því að hætta námi í áfanganum.

 

 

 

 


Fundargerð Umhverfisnefndar

 

Fyrsti fundur, föstudaginn 18. febrúar kl. 15:00

 

Í Umhverfisnefnd eru eftirtaldir:

Gísli Ragnarsson, skólameistari

Heiða Björk Sturludóttir, umhverfisfulltrúi

Kristjana Karlsdóttir, matráðskona ( deilir einni stöðu með Sigrúnu Jóhannsd.)

Sigrún Jóhanssdóttir ( deilir einni stöðu með Kristjönu Karlsd.)

Berta Kristinsdóttir, ræstingastjóri (deilir einni stöðu með Margréti)

Margrét Margrétardóttir, ræstitæknir (deilir einni stöðu með Bertu)

Vigfús Þór Jónsson, umsjónarmaður

Sæþór  Ólafsson, kennari

María Björg Kristjánsdóttir, kennari (deilir einni stöðu með Guðrúnu Stefánsd.)

Guðrún I. Stefánsdóttir (deilir einni stöðu með Maríu Björg Kristjánsd.)

Jóhanna Þ. Sturlaugsdóttir, kennari á starfsdeildum

Gunnþórunn Jónasdóttir, kennari Heilbrigðisskóla

Sigrún Ýr Svansdóttir, nemandi á náttúrufræðibraut

 

Allir mættir fyrir utan Sæþór, Guðrúnu, Vigfús, Bertu, Margréti og Sigrúnu Jóhannsd.

 

Formaður nefndarinnar er Gísli Ragnarsson, skólameistari

Ritari er Heiða Björk Sturludóttir

 

Grænfáninn kynnur nefndarmeðlimum og umhverfisskrefin sjö kynnt fyrir meðlimum ásamt umhverfisáætlun FÁ.

 

Rætt um umhverfismál almennt og Staðardagskrá 21 en Grænfáninn er eitt af þeim verkfærum sem notuð eru til framfylgja þeirri alþjóðlegu umhverfisstefnu.

 

Ákveðið auglýsa eftir nemendum í umhverfisnefnd sem gefur 3 einingar á misseri. Nemendur munu vinna m.a. vinna umhverfisgátlista fyrir skólann sem sýnir hver staðan er í dag.

 

Ákveðið að byrja að undirbúa umhverfisáfanga sem hægt verður að bjóða uppá í haust. María, Heiða Björk og Gunnþórunn athuga það mál.

 

Næsti fundur ákveðinn um miðjan maí. Tilkynning um nákvæman fundartíma verður send út síðar.

 

Fundarmenn kynntu sig hver fyrir öðrum.

 

Fundi slitið kl. 15:30