21. apríl 2004
Næsta vetur mun
samstarfsnefnd um endurmenntun framhaldsskólakennara bjóða upp á námskeið fyrir
leiðsagnarkennara, en þeir sinna kennaranemum og nýjum kennurum. Námið er 80
stunda vettvangsnám, kennt í lotum með heimavinnu á milli. Þátttakendur fá
einnar kennslustundar afslátt á vinnuskyldu á viku. Umsjónarmaður er Hafdís
Ingvarsdóttir og veitir hún nánari upplýsingar. Umsóknarfrestur er til 1. maí.
Einnig er auglýst vettvangsnám fyrir
íslenskukennara, vettvangsnám um nýja kennsluhætti, hugmyndir og hagnýtingu og
loks vettvangsnám í námsefnisgerð sem er nýtt. Umsóknarfrestur er til 1. maí.
Margrét Þorvaldsdóttir, margrett@hi.is,
veitir nánari upplýsingar.
Í dag fara í póst
565 gíróseðlar til nemenda okkar. Þeir hafa greiðslufrest til 4. maí
næstkomandi. Auk þess fá gíróseðil 12 sjúkraliðar í staðbundnu framhaldsnámi og
26 sjúkraliðar í sama námi um fjarfundabúnað.
Fyrirhugaður er
fundur með ráðuneytismönnum í byrjun bæ. Nokkrir hafa sent athugasemdir vegna
rýmisáætlunarinnar, en nauðsynlegt er að fá allar athugasemdir í hús fyrir 1.
maí.
Ýmislegt er nú
þegar ákveðið um viðhald hússins í sumar. Vigfús er útsjónarsamur og
skipuleggur það vel. En betur sjá augu en auga og því eru menn beðnir að senda
Vigfúsi ábendingar um það sem þeim finnst að megi laga.
Sölvi
Sveinsson