Vikuskammtur

  1. september 2003

 

Vikuskammtur

Ætlunin er að senda þennan pistil vikulega á póstlistann og til tengiliða í ráðuneytinu. Pistillinn verður birtur á heimasíðunni undir Á vettvangi.

 

Kennsla byrjuð

Kennsla hófst síðastliðinn mánudag og fór vel af stað. Margir hópar eru nokkuð stórir, enda gerðist það núna sem aldrei hefur orðið fyrr að nær allar töflur voru sóttar, en að jafnaði ganga 6-8% af. Nokkrir hópar hafa því verið færðir til, en alvarlegir árekstrar hafa ekki orðið.  Tvisvar  sinnum í viku verður að kenna litlum  hóp  í hornstofunni í Síðumúla 6. Nemendur með stundaskrá eru nú 924.

 

Innritun í fjarnám

Nú hafa 1100 manns skráð sig í fjarnám. Skráningu lýkur á miðnætti í kvöld. Þá verður farið yfir málin og metið hvort við getum tekið við öllu safninu, en það ræðst einkum af því hvernig hópurinn skiptist milli okkar nemenda og annarra.

 

Dyslexía

Elín og Sveinbjörg eru að ganga frá smábæklingi um þjónustu sína og skólans við leshamlaða. Skipulagið verður kynnt kennurum síðar.

 

Foreldrafundur

Foreldrar ólögráða nemenda hafa verið boðaðir í skólann næstkomandi fimmtudagskvöld kl. 8.00. Þar mun undirritaður flytja ávarp, námsráðgjafar útskýra námsskipulag í einföldum dráttum og Bryndís Valsdóttir forvarna- og félagsmálafulltrúi ræða við foreldra um forvarnir og félagslíf.

 

Nýr starfsmaður

Hólmfríður Árnadóttir hóf störf  í morgun, en hún er stuðningsfulltrúi og fylgir einum nemandi í starfsdeild 1 í tíma og liðsinnir honum við námið. Ég býð Hólmfríði velkomna til starfa.

 

Sölvi Sveinsson