Vikuskammtur
1. nóvember 2004
Námsáætlanir
Það er kannski
gamaldags, en mér finnst samt nauðsynlegt að kennsluáætlanir liggi frammi á
skrifstofu útprentaðar. Þeir sem eiga eftir að skila eru vinsamlega beðnir að
láta Fjólu hafa útprentun.
Afleysingamaður
Það er verið að
lagfæra hnéð á henni Daniele. Gunnar Geir Pétursson kennir fyrir hana að hluta
til og verður því viðloðandi kennarastofuna hjá okkur þessa viku að minnsta
kosti.
Skyndihjálparnámskeið
Námskeið í
skyndihjálp fyrir starfsmenn verður föstudaginn 5. nóvember kl. 13-17.00 í
stofu A11. 18 manns eru bókaðir, en ef einhver vill bætast í hópinn þá er það
möguleiki í dag.
Kína
Ólafur H.
Sigurjónsson fór til Kína í gærmorgun með vetnisstelpunum. Hann er væntanlega
lentur í Sjanghæ núna – nema öryggiseftirlitið hafi hremmt þau með dularfullan
búnað í handfarangri. Í Kína er það ferðamannsskylda að fara á veitingahús sem
bjóða upp á mismunandi rétti úr hundakjöti. Ég bíð spenntur eftir að heyra
hversu vel það bragðast.
Eyðsla
Nú er eiginlega
komið að þeim tímapunkti að ekki verður ráðist í frekari fjárfestingar eða
eyðslu. Hins vegar geta einstakar deildir farið að hugsa um framtíðina og
skilað til Eddu fjármálastjóra tillögum sínum til fjárhagsáætlunar næsta árs.
Heimsókn frá Kalix
Hingað komu
sænskir gestir fyrir helgina, frá Mediegymnasiet í Kalix í Norður-Svíþjóð en
Björg Árnadóttir nam einmitt í þeim skóla og tók á móti gestunum ásamt Stine,
Sigurlaugu fjarnámsstjóra o.fl.
Gíróseðlar
Nemendur okkar
hafa nú fengið gíróseðla senda heim vegna vorannar. Ég bið ykkur að ítreka við
nemendur að þeir greiði seðlana á réttum tíma. Seðlunum verður lokað þegar
eindagi þeirra er liðinn og aðrir teknir inn í staðinn.
Fjarvera
Undirritaður
verður á Englandi 3.-7. nóv. í Comeniusarerindum. Kristján Thorlacius er
munstraður meistari á meðan.
Starfslok
Undirritaður fer
að fullu til nýrra starfa 1. janúar. Ég mun þó verða talsvert þar í efra fram
að jólum. Ég tel víst að staða mín verði auglýst laus til umsóknar á næstu
dögum. Ég ætla að tala við nemendur þegar auglýsingin verður birt.
Sölvi Sveinsson