Vikuskammtur

1. mars 2004

 

Frumkvöðlafræðsla – nýr áfangi?

Nú er verið að tilraunakenna austur í Hornafirði nýjan áfanga sem byggist á frumkvöðlafræðslu. Þar eru 10 nemendur í áfanganum sem er þrjár einingar. Áfanganum er ætlað að efla sjálfstraust, fjármálavit, framsækni og víst eitthvað fleira. Fyrirhugað er að í haust liggi fyrir námsefni á íslensku. Nú lýsi ég eftir kennara/kennurum sem hefðu hug á að taka að sér svona áfanga og mun skólinn sjá þeim fyrir námskeiði í frumkvöðlafræðum. Á borði hjá mér eru til skoðunar bækur sem á að þýða.

 

Bygginganefnd

Bygginganefnd hélt fund á dögunum. Hér er fundargerð sem Ólafur H. Sigurjónsson skráði:

 

1. fundur bygginganefndar Fjölbrautaskólans við Ármúla

haldinn 18. febrúar 2004 kl. 15:00 á skrifstofu skólameistara.

 

Mætt: Vigfús Þór Jónsson húsvörður, Kristen Mary Swenson kennari, Erna Jóhannsdóttir kennari, Kristín Björgvinsdóttir forstöðumaður bókasafns, Snorri Már Skúlason nemandi, Oddur Helgi Guðmundsson nemandi, Bryndís Þóra Þórsdóttir kennslustjóri, Sölvi Sveinsson skólameistari og Ólafur Hjörtur Sigurjónsson aðstoðarskólameistari.

 

Skólameistari setti fund og bauð nefndarmenn velkomna. Gerði grein fyrir aðdraganda að byggingaframkvæmdum. Rætt um hlutverk og verksvið nefndarinnar. Vera til ráðgjafar og setja fram hugmyndir og óskir um væntanlegar byggingaframkvæmdir. Fyrir fundinn hafði verið dreift til nefndarmanna skjali um þarfagreiningu um byggingaframkvæmdir. Skólameistari rakti framkomnar hugmyndir um hugsanlegar viðbyggingar; byggja hæð ofan á austur- og vesturálmu; viðbygging suður af austurálmu og suður/vestur af vesturálmu. Jafnframt tenging álma saman með lyftuhúsi.

 

Þessu næst gerðu einstakir fulltrúar grein fyrir hugmyndum sínum.

1. Fulltrúar nemenda: 

a)            aðstaða nemendaráðs

b)            mötuneyti

c)            íþróttaaðstaða, tækjasalur

d)            félagsaðstaða

e)            bókasafn

f)              lagfæra loftræstingu (svo sem salerni neðri hæð vesturálmu)

g)            tölvuaðstaða

 

2.      Kennslustjórar á heilbrigðissviði hafa tekið saman greinargerð og gerði Bryndís stuttlega grein fyrir því.

 

3.      Fulltrúar kennara:

a)      aðstaða nemenda

b)      vinnuherbergi kennara

c)      salur

d)      aðstaða til kennslu, kennslustofur verði að norðanverðu

 

4.      Bókasafnið verði fært og verði miðlægt í húsinu. Hugað verði að lestraraðstöðu.

 

5.      Ýmis almenn atrið sem fram komu.

a)      ljósritun

b)      salerni

c)      tölvutengingar

 

Ólafur minntist á fyrirhugaðar lagfæringar á líffræði-, efna- og eðlisfræðistofum næsta sumar

 

Fleira  ekki gert fundi slitið kl. 16:30

Ólafur H. Sigurjónsson fundarritari

 

Viðauki:

Skólameistari og aðstoðarskólameistari funduðu síðar með netsjórum skólans þeim Helmut Hinrichsen og Hólmfríði Jónu Ólafsdóttur. Æskilegt að huga að því hvort ekki væri skynsamlegt að færa tölvuver. Er í litlum og þröngum stofum sem gerir hópvinnu erfiða og er almennt hamlandi.

 

 

Hér var síðan viðauki, en hann hafa starfsmenn fengið í hendur, afrit af bréfi sem sent var ráðuneytisstjóra í haust.

 

Umsóknir um styrki úr Þróunarsjóði

Nokkrar umsóknir foru héðan, ein um lausnaleitarnám (Þórunn Óskarsdóttir), um námsefni og vef um veftækni (Björgvin Ólafsson), um gerð myndbands um heilabilun (Guðrún Hildur Ragnarsdóttir) og frá Framvegis í samvinnu við skólann og ýmsa aðila. Loks umsókn um styrk til Ungra vísindamanna (Ólafur H. Sigurjónsson).

 

Fjarkennslustjóri

Nokkrir spurðust fyrir um stöðu fjarkennslustjóra, en ein umsókn barst, frá Sigurlaugu Kristmannsdóttur. Hún hefur verið ráðin til starfa.

 

Meira um byggingar

Arkitektar koma á fund bygginganefndar nú á miðvikudag kl. 15.30. Komið ábendingum til nefndarmanna!

 

Áfangar í boði á haustönn

Nú eru síðustu forvöð að ganga frá áfangaframboði fyrir haustönn. Sendið eb@fa.is skilaboð.

 

Stöðumat í áfanga

Nú er hægt að hefja innslátt miðannarmats!

 

Haustfrí

Hugmyndin er að hafa haustfrí um miðjan október. Að þessu sinni verður lagt til að fríið verði fimmtudaginn 14. og föstudaginn 15. október.

 

Sölvi Sveinsson