Vikuskammtur
15. september
2003
Safamýrarmál
Málefni nýrrar sérdeildar í Safamýrarskóla eru í biðstöðu þar sem ekki er samkomulag milli ríkis og borgar um tilhögun mála, en væntanlega næst það á næstu dögum eða vikum.
Kennarafundur
Kennarafundur verður haldinn næstkomandi föstudag kl. 13.00. Aðalmál fundarins er fyrirhuguð stækkun skólans, en síðan munu Elín og Sveinbjörg skýra í grófum dráttum frá þróunarverkefni sínu um lausnaleit fyrir dyslexíska. Fundurinn verður í umsjá viðskiptadeildar.
Útivistardagur
Útivistardagur verður næstkomandi miðvikudag. Fyrstu tveir
tímarnir verða kenndir, síðan ekki söguna meir. Fí verður fyrstu tvær
kennslustundirnar á fimmtudag vegna dansæfingar nemenda á
miðvikudagskvöld.
Vika
símenntunar
Undirritaður stýrði í vikunni sem leið ráðstefnu á Hótel Loftleiðum um símenntun. Aðalfyrirlesari var dr. Gilly Salmon, enskur prófessor. Líklegt er að hún verði einn af aðalfyrirlesurum á ut-2004 þar sem inntak rafrænnar menntunar verður til umræðu fremur en umbúnaður og tæknin. Þá hef ég í hyggju að fá þessa konu til þess að vera með fjarkennurum dagstund og leiðbeina þeim. Hún var með mjög áhugavert erindi um hvernig eigi að laða nemendur að fjarnámi og virkja þá.
Fjarnám
Kennsla í fjarnámi hefst í dag. Alls hafa greitt um 600 manns, en frestur er ekki endanlega út runninn.
Gjöf frá
Sjúkraliðafélaginu
Sjúkraliðafélag Íslands hefur fært skólanum að gjöf forláta
skjávarpa sem settur verður upp í stofu A25. Bestu þakkir!
Umhverfisstefna
Sæþór Ólafsson og Heiða Björk Sturludóttir eru að móta umhverfisstefnu skólans. Sendið þeim hugmyndir í púkkið!
Dönsk
heimsókn
Í dag koma 11 Danir í heimsókn, kennarar í heilbrigðisskólum þar í landi. Stine utanríkisráðherra tekur á móti þeim.
Samræmd próf í
íslensku
Í dag kl. 15.00 kemur verkefnisstjórn samræmdra prófa í heimsókn til að skrafa við yfirstjórn skólans og íslenskukennara um samræmt próf í móðurmáli á vori komanda.
Verðlaunaveiting
Vetniskrakkarnir taka á móti verðlaunum sínum á sal kl. 12.45 í dag að viðstöddum fjölmiðlum. Þau halda svo af landi brott í vikulokin undir handarjaðri Ólafs H. Sigurjónssonar.
Sölvi
Sveinsson