Vikuskammtur
15. mars 2004
Bygginganefndir
fimm skóla í borginni eru boðaðar á fund í menntamálaráðuneytinu kl. 15.00 í
dag. Þar mun Gerður Óskarsdóttir fræðslustjóri fara yfir málin. Nefndin okkar
hélt 2. fund sinn á dögunum. Meðfylgjandi er fundargerð Ólafs H.
Sigurjónssonar.
2. fundur
bygginganefndar Fjölbrautaskólans við Ármúla
haldinn 3. mars 2004 kl. 15:30 í kennslustofu A13
Mætt: Vigfús Þór Jónsson húsvörður, Erna Jóhannsdóttir kennari, Kristín
Björgvinsdóttir forstöðumaður bókasafns, Snorri Már Skúlason nemandi, Bryndís
Þóra Þórsdóttir kennslustjóri, Sölvi Sveinsson skólameistari og Ólafur Hjörtur
Sigurjónsson aðstoðarskólameistari.
Kristen Mary Swenson kennari boðaði forföll, Oddur Helgi Guðmundsson
nemandi fjarverandi.
Egill Guðmundsson, Björn Guðbrandsson og Hallur Kristvinsson arkitektar
komu á fundinn
Skólameistari setti fund og bauð nefndarmenn velkomna.
Egill gerði grein fyrir því að FB og FÁ væru báðir undir skoðum þeirra .
Þeirra vinna yrði þessi:
Úttekt á núverandi húsnæði.
Fara yfir það sem
gert hefur verið í hugmyndavinnu og vinna einnig alveg óháð því að nýjum
hugmyndum.
Áætlun um húsrými
til framtíðar miðað við sérstöðu skólans.
Tillögur að lausn
bæði í núverandi húsnæði og vegna stækkunar.
Tillögur um
lóðarfyrirkomulag.
Stefnt er að því að
greiningu og forsögn (rýmisáætlun ) verið lokið í mars og tillögum í
apríl. Haft verður samband við
Fasteignir ríkisins til þess að viðhaldaáætlun þeirra og fyrirhugaðar tillögur
skarist ekki.
Kannað verður hjá
skipulagsyfirvöldum hvernig lóðarmálum er háttað, en lóð skólans hefur minnkað
nokkuð vegna nágrannabyggðar sem farið hefur inn á hana.
Fundarmenn skiptust
á skoðunum um þessa áætlun og eru aðilar eru sammála þessu meginferli.
Að þessu loknu fóru
arkitektar um húsið í fylgd húsvarðar
Fundi slitið kl.
16.30
Ólafur H.
Sigurjónsson fundarritari
Úthlutun er
lokið. Mér sýnist eftirtaldir styrkir koma hingað í hús: Bryndís Þóra
Þórsdóttir: 200 þús. í vefsíðu í lyfhrifafræði. Guðrún Kjartansdóttir: 200 þús.
í lyfjahvarfafræði 203. Margrét Gestsdóttir: Stríð og mansal. 100 þús. Ólafur
Þórisson: Námsefni fyrir myndvinnslu og margmiðlun. 150 þús.
Færeysk heimsókn
Í vikunni sem var
komu í heimsókn 12 nemendur og 2 kennarar úr menntaskóla í Færeyjum. Þau voru
hér í sambandi við verkefni sem þau eru búin að vinna í skólanum hjá sér.
Verkefnið er hluti af forvarnastarfi í Færeyjum. Krakkarnir sem komu búa
öll á eigin vegum meðan þau eru í skóla. Stine
utanríkisráðherra tók á móti eyjaskeggjum.
Almennt virðist
nemendum ganga vel að nálgast matið. 158 nemendur eru með þrjú C eða fleiri. Ég
mun ræða við alla sem fengu fjögur C eða fleiri.
Sérdeildin okkar
í Safamýri gengur vel. Nú er ljóst að skólinn fær til umráða næsta vetur
stofuna á Lyngási og tryggir það rekstur deildarinnar næsta vetur. Á meðan
verða ríki og borg að ná saman um húsnæði til frambúðar.
Nokkrir tugir
nemenda hafa nú valið, en betur má ef duga skal. Brýnt er að ítreka við
nemendur að velji þeir ekki fá þeir ekki sendan gíróseðil og þar með ekki
skólavist. Ég bið menn ítreka þetta við nemendur í þessari viku. Vali skal vera lokið 26. mars.
Undirrituðum var
boðið á tengslaráðstefnu í Bordeux 17.-19. mars. ÓHS
mun sækja hana fyrir hönd skólans.
Sölvi
Sveinsson