Vikupistill
14. febrúar
2005
Fjarvistir nemenda
Margir kennarar hafa komið að máli við mig og lýst yfir áhyggjum sínum
vegna fjarvista nemenda. Mikilvægt er að nemendum sé gert það ljóst að þeir sem
stunda skólann illa fá ekki skólavist í haust (75% reglan).
Átaksvika nemenda 14. – 18.
febrúar
Nemendur standa fyrir átaksviku í samvinnu við forvarnafulltrúa og
skólayfirvöld vikuna 14. – 18. febrúar. Skólastjórn mun í kjölfarið gera það sem í hennar
valdi stendur til að bæta aðstöðu nemenda, t.d. með kaupum á húsgögnum og
tækjum. Eftirfarandi reglur gilda:
·
1: Frá og með
mánudeginum 14. febrúar skulu allar
reykingar á skólalóð FÁ takmarkast við austurenda
skólans þar sem reykingarskýlið er.
Reykingar annarsstaðar á skólalóðinni eru stranglega bannaðar!
·
2: Öllu rusli,
þar með talið notuðu “tyggjói” skal henda í ruslafötur.
Allir eru hvattir til að fara eftir þessum reglum
og leiðbeina brotlegum með bros á vör. Vigfús
húsvörður mun meta árangurinn föstudaginn 18.
febrúar.
Átaksvikan verður kynnt í hádegishléinu í dag og Lilja
og Salka munu syngja lag sitt úr söngkepnni FÁ. Stefnt er að þvi að söngatriði verði fastur liður í átaksvikunni.
Miðannarmat
Miðannarmat þarf að færa í INNU í síðasta lagi 23 febrúar. Nemendur fá
matið í umsjónartíma mánudaginn 28. febrúar.
Egluferð
Íslenskudeildin hyggst fara með nemendur á Egluslóðir einhvern daginn í vikunni
(þri. til fi.). Reiknað er með að u.þ.b. 60 nemendur
fari í ferðina.
Forvarnir
Eitthvað er um það að nemendur noti munntóbak í skólanum. Ekki þarf að taka
það fram að munntóbaksnotkun er bönnuð í skólanum.
Útlendingar í heimsókn
Þann 8. feb. kom Charlotta Paschinsky
kennari við Svenska Yrkesinstitutet í Vasa í
heimsókn. Stine Munk Rasmussen tók á móti henni.
Charlotta hafði sérstakan áhuga á lyfjatæknabrautinni og fjarnáminu og fannst
henni við langt komin á því sviði. Hún hefur mikinn áhuga á samstarfi skólanna.
Þrír
Svíar á vegum menntamálaráðuneytisins komu til að kynna sér fjarnámið í FÁ. Sigurlaug
Kristmannsdóttir fjarnámsstjóri tók á móti þeim.
Fundir í vikunni
1.Stýrihópur um sjálfsmat er boðaður til
hádegisfundar á skrifstofu skólameistara næsta fimmtudag 17. febrúar kl. 12.40.
2.Kennarafundur er boðaður föstudaginn 18. febrúar
kl. 13.00. Á dagskrá er kynning á niðurstöðum þriggja starfshópa: aðstaða nemenda
(hópur 5), fjarnámsfyrirkomulag (hópur 10) og hlutir sem hægt er að framkvæma
strax (hópur 11).
Gísli Ragnarsson