Vikuskammtur

13. desember 2004

 

Færsla prófa

Rúmlega 500 nemendur völdu þann kost að færa próf gegn 1000 kr. greiðslu. Fénu er varið til kaupa á húsgögnum í salinn.

 

Orlof

Hálft annað orlof kom í hlut kennara skólans. Gréta Mjöll verður í námi allan veturinn, en Jörundur að hálfu. Erna Jóhannsdóttir fer í launalaust leyfi um áramótin til að stjórna því að rétt sé bókað hjá RÚV.

 

Samningur við BSRB

Síðastliðinn fimmtudag undirrituðu Birna Gunnlaugsdóttir og Ögmundur Jónasson samning um að Framvegis skipulegði námskeið í tungumálum fyrir BSRB og útvegaði kennara til starfa. Þetta gætu orðið allt að 1500 manns á tveimur árum. Væntanlega verður leitað til kennara hér við skólann.

 

Dagarnir framundan

Í dag eru síðustu sjúkraprófin og færa þarf einkunnir hið allra fyrsta, helst í dag, en í síðasta lagi fyrir kl. 10.00 þann 14. desember. Afar brýnt er að geta farið dálítið vel í saumana á einkunnablöðum. Valdagur er þann 16. desember og hefst með kennarafundi kl. 10.00. Einkunnir eru afhentar kl. 11-13.00 og því er eindregið beint til umsjónarkennara að klára hvern nemanda meðan ferillinn er nærtækur. Prófasýning er kl. 13-14.00 sama dag. Nemendur verða brautskráðir í Háskólabíói þann 17. desember kl. 15.00.

 

Verðlaunahafar

Verkstjórar í deildum þurfa að gaumgæfa möppu með líklegum verðlaunahöfum og kennslustjórar að finna sitt fólk sem verðlauna ber.

 

Nemendafjöldi á vorönn

945 hafa staðfest skólavist sína með greiðslu gíróseðils. Að líkindum fækkar þeim um 30-50 þegar rýnt hefur verið í einkunnablöð.

 

Sölvi Sveinsson