Íslenska |
• ÍSLE1GR05
(103) |
|
|||||
Traust kunnátta í íslensku er ein meginundirstaða menntunar á Íslandi, segir í nýrri aðalnámskrá framhaldsskóla. Nemendur eiga að öðlast skilning á sögulegu, menningarlegu og félagslegu gildi máls og bókmennta. Þeir verða að átta sig á eðli móðurmálsins og lögmálum, ná góðri færni á öllum sviðum málnotkunar, bæði í ræðu og riti, geta tjáð skoðanir, hugmyndir og tilfinningar og öðlast traust á eigin málnotkun. Þekking á móðurmálinu, eðli þess, sögu og sérkennum, er nauðsynlegur þáttur í almennri menntun. Í íslenskukennslu er fjallað um þau
menningarlegu verðmæti sem felast í móðurmálinu og íslenskum bókmenntum.
Jafnframt er stuðlað að því að nemendur öðlist
jákvætt viðhorf til íslensku og kynnist áhrifamætti og margbreytileika
málsins. Enn fremur að þeir þjálfist í markvissri notkun tungumálsins með
fjölbreyttum verkefnum. |
|||||||
|
|||||||
|
|
|
|
|
|
|